20 nóvember 2011

uppgjörið!!

Nú er keppnisdagurinn komin og farin, guð hvað hann leið hratt.

Þessi svaðil för hefur gegnið eins og í sögu, þrátt fyrir nokkra uppgjafartóna ;)

Mér finnst eins og það hafi verið í síðasta mánuð sem ég stóð á nærbrókinni inn í stofu hjá Katrín Evu með minnst sjálftraust í heimi og leið virkilega illa i eigin líkama!.  Hún er nátturulega yndisleg í alla staði og ekki af ástæðulausu sem ég valdi hana sem þjálfara. Hún er sjálf íslandsmeistari í fitness 2009 og vann sinn flokk á Arnold Classic 2010, svo þessi kroppur veit hvað hann syngur. Ef þið hafið áhuga á því að kynna ykkur fjarþjálfuninna hennar þá er bara að klikka HÉR

Þessi mynd er tekin í Janúar 2010. Hér er næstum því ár síðan ég hætti að reykja og uppgvötaði ást mína á mat aftur. Fór úr rúmum 58 kg í 66 kg á 5 mánuðum og sprengdi af mér allan fataskápin minn.
Ég er búin að vera að undirbúa mig fyrir mótið í 11 mánuði núna. tók ákvörðun um að keppa í nóvember 2010 eftir að hafa mætt á mitt fyrsta fitness mót en kroppamótuninn byrjaði ekki fyrr en 7 jan með fyrstu mælingunni minni, þá var ég 66 kg og 26,97% fita. 
lítil bolla

Eins og sést á þessum myndum þá leið mér alls ekki vel í eigin skinni.  Að vera í fjarþjálfun hjá Katrínu er ekkert djók og hún lætur mann byrja púla strax á fyrsta degi, enda hefði ég ekki náð mínum árangri án þess.  Markmiðið fyrst var að minnka fitu og byggja upp vöðva til að fá einhvað mót á líkaman.

Mikil munur frá því í febrúar.

Í lok águst byrjaði ég svo í niðurskurðil, hérn er ég orðin  sátt við flest á líkamanum (það má alltaf bæta sig) en ég var komin niður í þá þyngd og fituprósetnu sem ég vil vera í eða 56 kg og 15,4% fita. hérna var ég farin að fara í ræktinna 2 sinnum á dag og var á ströngu mataræði, þó alltaf með mína himnesku nammidaga! 

Mótið sjálft var draumur, mætti í miklu stressi á forkeppnina með stóran og þungan kvíðahnút í maganum!  Í fyrstu innkomu var T-ganga í íþróttafötum, stressið var of mikið svo ég man ekki einu sinni eftir því, en ég var of snögg og því voru pósurnar mínar og gangan ekki nógu góð! 

Önnur innkoma var svo í bikini. Nú var mesta stressið farið og ég hlakkaði virkilega til að koma aftur fram. Ég var kölluð upp einu sinni sem er persónulegur sigur. 
Eftir þessa lotu fór ég myndartöku hjá Gunnar Reyr, mér hefur aldrei liðið jafnvel í myndartöku og hjá honum. Ég fæ vonandi myndirnar í næstu viku og mun ég henda inn sýnishorni hér :D. 
Fram pósa

Aftur pósa

Sundbolalotan var svo um kvöldið. Í þessari innkomu var ég eiginlega ekkert stressuð og naut mín í botn á sviðinnu. Held að ég hafi aldrei verið jafn sátt með sjálfa mig og akkúrat þá. 

HÉR  má svo sjá öll úrslit :D

Ég lærði heilmikið af þessu og mun nýta mér það allt til að koma sterk inn á páskamótið 2012!!! þá verður sko farið heim með medalíu!
XOXO

3 ummæli:

  1. Fallegur árangur hjá þér :)

    Kv. Tanja Mist

    SvaraEyða
  2. Frábær árangur, rakst á bloggið þitt fyrir einhverju síðan og hef fylgst með þér síðan þá.

    Þú ert algjör snillingur og geislar alveg á sviðinu! Þú ert fyrirmyndin mín :)

    Hlakka til að fylgjast með þér áfram!

    SvaraEyða
  3. Vá Ingibjörg ég þakka fyrir falleg orð, er bara með kökkinn í hálsinum! þetta svo sannarlega borgar sig þegar maður fær svonna hrós!

    SvaraEyða