Uppskriftir

Bananabrauð (hollari útgáfa)

besta banana brauð sem ég fæ er án efa mömmu bananabrauð, ég geri því nokkrar breytingar á því og það heppnaðist svonna líka vel!
Innihald:
2 bollar fínt spelt 
2/3 bolli agave sýróp 
1.5 tsk lyftiduft
2 stórir bananar (muna að stappa þá)
1 egg (meðal)
öllu skelt í skál og hrært með sleif
sett í mót (setti mitt í eldfast mót með álpappír og non fat cooking spray)
bakað í um 45-60 mín á 180-200°C.

Total
1549 kcal
60 g prótein
13 g fita
322 g kolvetni