![]() |
Quote eftir Jennifer Nicole Lee |
Ég var oft spurð af því þegar ég var í niðurskurði hvort ég ...
- væri ekki hrædd um að fá anorexiu/bulemiu
- hvort ég myndi aldrei borða óhollt
- hvor mig langaði ekki í það sem var á boðstólnum
- afhverju ég drykki ekki áfengi
Og svörin við því eru nei, ég er ekki hrædd um að fá anorexiu, jú ég borða oft óhollt, jú mig langaði oft í lasagnað sem ég eldaði handa kærastanum mínum á meðan ég sat með kjúlla og sætar kartöflur og með áfengið þá týmdi ég ekki að vera að drekka allar þessar kaloríur því ég er full fær um að skemmta mér edrú :D fékk mér frekar bara snickers og diet kók!
![]() |
mmm.. |
Fitnessið er fyrst og fremst lífstíl, það er engin í þessu af hálfum hug því þú þarft að leggja líkama og sál í þetta til að ná árangri. Margir halda að þetta snúist bara um að borða lítil, hreyfa sig mikið og dilla sér upp á sviði í efnislitlu bikini (ég var þeirra skoðunar fyrst) en þetta er bara svo mikið meira, því hugurinn þarf að vera 150% svo allt gangi upp.
Sjálfsagi er eitthvað sem kemur með tímanum og vantar mér helling upp á minn, þó svo að hann er mun meiri en þegar ég byrjaði í þessu. Ég geri þetta ekki fyrir neinn annan en sjálfan mig og ef ég ætla ekki að gera þetta almenilega þá get ég bara sleppt þessu!
Við erum jú mannleg, og það kemur fyrir að maður fái samviskubit yfir því sem maður borðaði eða hvesru latur maður var þann daginn en þá þýðir heldur ekkert að finna einhverjar afsakanir um að þetta var svonna eða hinsvegin. Þá er mikilvægt að muna að það kemur dagur eftir þennan dag, og því um að gera að koma sterkari inn og læra að mistökunum sínum.
Ég hef tekið eftir því núna undanfarið að stelpur sem eru í góðu formi, skornar og með fallegan vöðvamassa á sér er næstum því drekkt í einhverjum skítakommentum um að þetta sé ekki fallegt, kvennlegt, hvernig þær geta farið svonna illa með likaman sinn, þær séu með anorexíu eða allt of horaðar. En guð forði okkur frá því að commenta eitthvað um holdarfar stúlkna sem eru í oþyngd.
![]() |
Grannt módel |
![]() | |||||||||
Katín Edda, sigurvegarin í sínum flokki :D |
Ég veit ekki alveg hver megin línan í þessu bloggi er ... en langaði skella því inn því það summar svoldið upp hvað ég er búin að vera að pæla undanfarnar vikur
þanngað til næst ! :D